3
DAGUR 1
DAGUR 1
Sjöundi mars 2019. Ég hafði unnið langt fram á nótt og sofnað í sófanum niðri í stofu. Eldsnemma morguns vakti Engilbjört mig. Hún var greinilega mjög máttfarin. Það virtist hafa útheimt alla hennar orku að komast ofan af efri hæðinni þar sem svefnherbergið okkar er og niður í stofuna til mín.
„Óli, þú verður að hringja á sjúkrabíl, ég held að ég sé komin með þetta sama og síðast.“