28
EFTIRMÆLI
EFTIRMÆLI
Þegar Engilbjört féll frá skrifuðu margir fallegar kveðjur og eftirmæli um hana, bæði í minningargreinum og á Facebook. Hér fara á eftir nokkur orð sem lýsa henni vel.
„Þú varst ein af þessum einstöku. Hlý, traust, skemmtileg, fyndin og sú allra besta vinkona sem nokkur getur eignast.“ – Hildur og Inga.
„Allt í kringum hana var í einstöku jafnvægi. Hún var alltaf kát, alltaf með á nótunum, stutt í brosið, föst fyrir þegar þurfti en aldrei frek og dillandi hlátur gerði allt gott. Nærvera Engilbjartar var hlý og einlæg og skapaði gott andrúmsloft. Og aldrei neitt vesen. Hún þoldi ekki vesen. Kannski var það einstakt jafnaðargeð Engilbjartar og sterkur persónuleiki sem gerði það að verkum að jafnvel þótt hún sé ekki lengur hér finnum við ennþá svo sterkt fyrir henni.“ – Gísli Marteinn og Vala.
„Engilbjört var frá fyrstu kynnum blátt áfram, sjálfstæð og sterk. Hún sagði hug sinn óhikað, án málalenginga, og gat þannig auðveldlega slegið öll vopn úr höndum manns. En svo var hún hlý og brosmild, fyndin og skemmtileg; kryddaði sögur með leikrænum tilburðum, laðaði að sér alla í kring, án þess að reyna að vera önnur en hún sjálf. Umfram allt var hún traust og góð vinkona.“ – Birgir Tjörvi og Kristinn.
„Þetta skal ég muna, fallegu, litlu stelpuna með dökka, síða hárið, sem var mér svo kær, þig skal ég muna. Ungu konuna, sem tók lífið föstum tökum, vann sér inn þrjár háskólagráður, stofnaði heimili, gifti sig og eignaðist tvo myndarpilta, þig skal ég muna.“ – Guðmunda.
„Engilbjört kom til dyranna eins og hún var klædd og laus við alla tilgerð. Hún var prinsippkona, fylgin sér og tók sem dæmi ekki þátt í hégómlegum samfélagsmiðlalækum. Hún var mikil félagsvera og var oft drifkrafturinn í því þegar átti að gera sér glaða stund. Hún hafði sterkan persónuleika, var mikill húmoristi og með mjög svo smitandi og dillandi hlátur. Þegar Engilbjört hafði orðið þá var á hana hlustað og var hún ráðagóð vinkona.“ – Áslaug, Berglind og Ragnheiður.
„Hún var ákveðin og fylgin sér, húmoristi, hláturmild, traust og stóð alltaf með sínu fólki. Hún var mikil félagsvera og var alltaf til í hitting og stuð. Hún stóð fast á sínum skoðunum og var óhrædd við að segja hug sinn. Hún átti iðulega síðasta orðið og það átti líka við þegar við hittumst, hún fór yfirleitt síðust heim og fór síðust að sofa í sumarbústaðarferðum. Stundum, í þeim ferðum, þegar partíið stóð sem hæst og einhver ætlaði að lauma sér í rúmið þá var sá hinn sami sóttur af Frúnni og rekinn aftur á dansgólfið.“ – Ásta, Bára, Brynhildur, Guðrún, Hildur, Inga og Jórunn.
„Engilbjört var róleg og dramalaus. Hún gekk skipulega í öll verk og vann þau fumlaust og af yfirvegun. Hún var jarðbundin og stóð eins og klettur mér við hlið. Hún var óendanlega hlý og algjörlega gersneydd öllum hroka og sjálfumgleði. Enda drógust allir að henni. Engilbjört eignaðist vini hvar sem hún fór. Og einhvern veginn tókst henni að halda sambandi við þá alla. Hún fór ekki í manngreinarálit og mat fólk einungis eftir persónulegum verðleikum þess en ekki stétt og stöðu. Þessir eiginleikar hennar urðu til þess að hún var algjörlega óumdeild.“ – Svandís.
„Man þig alltaf elsku Engla mín, hreinskiptna, heiðarlega, ljúfa, einlæga, jarðbundna, fyndna, skemmtilega og fallega vinkonu.“ – Hrund.
„Lífsglöð og hláturmild. Réttsýn og jarðbundin. Af fundi hennar fór maður alltaf léttari í spori en maður kom. Ef fleiri væru eins og Engilbjört væri svo sannarlega minna vesen á veröldinni. Og fallegra um að litast.“ – Heimir Örn og Björg.
„Nafn hennar rímaði við nafn Herbjartar, tengdamóður hennar, og þegar hún féll frá var Engilbjört sú sem mátti reiða sig á. Engilbjört gat verið ákveðin og lét skoðanir sínar óhikað í ljós í okkar hópi, og stóð fast á sínu meðan hægt var. En við vissum að þetta var meðfætt keppnisskap og þegar leik lauk var slegið á létta strengi. Alltaf var hún vel til höfð og glæsilega til fara, fríð og með sitt bjarta bros. Hún var ákaflega stolt af sonum sínum og hugsaði vel um þá, tók ríkulega mark á því sem þeir lögðu til málanna og skein þar í móðureðlið, sem var svo sterkt í hennar skapgerð. Hún hafði alltaf gott til málanna að leggja án þess að trana sér fram og var jákvæð í þeim verkefnum sem fjölskyldunni voru lögð í fang.“ – Guðni Þór og Guðrún Lára.
„Ég hef þekkt Engilbjörtu frá því ég var 12. Hún var hluti af fjölskyldunni og reyndist mér vel, talaði við mig sem jafningja frá því við kynntumst. Ég bar mikla virðingu fyrir henni, hún náði að halda mörgum boltum á lofti án þess að það liti út fyrir að vera neitt mál, ala upp strákana, klára langskólanám, vinna vaktavinnu, vera alltaf vel til höfð og hafa huggulegt heimili. Í stóru fjölskyldunni okkar gegndi Engilbjört mikilvægu hlutverki. Hún var fyrirmynd jafnvægis á mörgum sviðum. Hún hélt okkur á jörðinni ef æsingur gerði vart við sig. Hún hélt utan um skipulag þar sem ættgeng gleymska og kæruleysi var til staðar. Hún var góður gestgjafi og gekk í það hlutverk jólin sem mamma dó. Hún var góð. Hún var glæsileg. Hún var stöðugleiki. Hún var nagli.“ – Lilja Írena.
„Alltaf hress, skemmtileg en jafnframt ákveðin og sterkur persónuleiki. Hún hafði ákveðnar skoðanir á hlutunum og var gjarnan með mikla leikræna tilburði sem krydduðu frásagnir hennar sem við sjáum svo ljóslifandi fyrir okkur í dag þegar við skrifum þessi orð.“ – Anna, Elísabet (Lizzý), Ragna Sigrún og Þórunn.
„Stóísk ró þín og húmor átti vel við þegar við vinkonurnar hittumst því einhver af okkur þurfti svo sannarlega að vera yfirveguð. Þú tókst það hlutverk og á sama tíma alltaf til í skemmtun og gleði.“ – Þórunn Ósk og Rósa.
„Búinn að hugsa mikið um góðar minningar um yndislega stúlku sem brosti breiðar en flestir. Sterk, sjálfstæð, hreinskilin, falleg, fyndin og einlæg eru orð sem mér eru í huga þegar ég hugsa til Engilbjartar.“ – Ólafur Örn.
„Fegurð, viska og kærleikur mömmu ykkar skín af ykkur elsku Kári Freyr og Guðni Þór og mun heiðra minningu dásamlegrar móður og eiginkonu um aldur og ævi.“ – Ásta Margrét.
„Minningarnar um Engilbjörtu hjálpa því þær eru allar svo uppfullar af einstakri hlýju og skemmtilegum hressleika. Hún var með sérstaklega þægilega nærveru, alltaf svo eðlileg í allri umgengni.“ – Óskar Þór.
„Það var svo dásamlegt að fá að fíflast og hlæja með henni. Hún hafði einstakan húmor sem fær mig til að brosa gegnum tárin þegar ég skrifa þetta.“ – Eva.
„Engjó eins og við kölluðum hana var mjög lífsglöð, lausnamiðuð og eldklár og hún var ekki að mikla hlutina fyrir sér.“ – Sigrún Ósk og Steinunn Ólöf.
„Hún var fljót að tileinka sér góð vinnubrögð og leysti verkefni sem henni voru falin af stakri fagmennsku. Samstarfsfólk hennar sem og viðskiptavinir vissu að allt sem frá henni kom var vel unnið og áreiðanlegt. Það var oft fjör og gaman hjá okkur á skrifstofunni og Engilbjört tók þátt í því öllu með sinni hlýju og notalegu framkomu, fallega brosi og yndislega hlátri.“ – Berglind, Hanna Björg, Karítas, Kjartan, Kristín, Pálína og Ragnheiður.
„Hún Engilbjört bar nafn með rentu. Yndisleg kona, eiginkona, móðir og vinur.“ – Birna og Sigurður Kári.
„Það eru þó nokkur ár síðan ég hitti Engilbjörtu fyrst (eftir að ég man eftir mér). Ég fann það strax hversu góða sál hún hafði að geyma og hún hafði mjög góða nærveru.“ – Bjartey.
„Ég man svo vel þegar ég hitti Engilbjörtu og hún kynnti sig. Ég hugsaði strax hvað nafnið hennar var vel valið. Það var svo bjart yfir henni og mikil hlýja sem stafaði frá henni og augljóst að þar fór einstök kona.“ – Unnur Valborg.
„Engilbjört var með eitt það fallegasta bros sem ég hef séð og ég veit að þú og þínir hafið oft fengið að njóta þess og verið kveikjan að því.“ – Anna Birna.
„Þau ár sem ég umgekkst hana í Versló var hún ekkert nema góðmennskan og fallegri sál vart hægt að hugsa sér.“ – Lárus.
„Hún gaf mér aldrei afslátt og ég elskaði það við hana.“ – Eddi.
„Erfitt að trúa að þessi bjarta, fallega skólasystir hafi kvatt svona snemma. Engilbjört verður alltaf í minningunni hlý, brosmildur töffari með afskaplega góða nærveru.“ – Jón Árni.
„Hún var ein af þessum heilsteyptu og fallegu einstaklingum sem finnast ekki hvar sem er.“ – Maríanna.
„Engilbjört var engri lík – heilsteypt og frábær í alla staði og mikil forréttindi að hafa fengið að kynnast henni.“ – Elísabet Indra.
„Engilbjört auðgaði líf allra sem hana þekktu. Ég sé svo eftir því að hafa ekki átt eina kvöldstund enn með henni og Óla. Það er áminning um að maður á ekki að bíða, ekki geyma góðar ákvarðanir, heldur nota tímann til að vera með góðu fólki.“ – Friðjón.
Eins og nefnt er hér að framan var Engilbjört prinsippmanneskja, sem hafði meðal annars það prinsipp að læka aldrei neitt á samfélagsmiðlum. Hún átti líka iðulega síðasta orðið. Það er því rétt að leyfa henni sjálfri að eiga hér síðasta orðið – sem fjallar einmitt um prinsipp. Þetta sagði hún þegar henni höfðu borist mjög margar afmæliskveðjur á Facebook á 45 ára afmælisdaginn sinn, þann 5. júlí 2016:
Takk kærlega fyrir allar afmæliskveðjurnar elsku vinir! Á svona stundu er erfitt að vera með það prinsipp að læka aldrei ;) en ætli prinsipp séu ekki einmitt þannig að stundum tekur á að fylgja þeim. Þið eruð yndisleg og mér er búið að hlýna um hjartarætur margsinnis síðastliðna daga. Takk fyrir mig.