Elsku vinkona.
Það er skrýtið að sitja hér og rifja upp minningar sem við höfum búið til saman og ótrúlegt að þær verði ekki fleiri. Fyrst þegar við systur sáum þig vorum við hugfangnar yfir fegurð þinni og tignarlegu fasi. Það var óttablandin virðing því við vissum ekkert hvernig ætti að nálgast stelpu eins og þig. Við vorum gapandi hissa og ekki breyttist það þegar við kynntumst þér. Stóísk ró þín og húmor átti vel við þegar við vinkonurnar hittumst því einhver af okkur þurfti svo sanarlega að vera yfirveguð. Þú tókst það hlutverk og á sama tíma alltaf til í skemmtun og gleði. Það er afar stutt síðan við vorum saman á skíðum fyrir norðan og vorum farnar að huga að næstu ferðum. Síðastliðið sumar var ógleymanlegt þegar við þurftum að takast á við ítölsku dömurnar á ströndinni. Við vildum beita róttækum aðgerðum til að losa okkur undan þeim en yfirvegun þín hélt aftur af okkur. Það er sárt að kveðja þig svona snemma og ekkert nema þakklæti að fá að hafa fengið að hafa þig í lífi okkar. Við systur munum gæta Hildar og Ingu eins og þú hefur alltaf gert. Óli, Guðni og Kári voru svo sannarlega gæfusamir að hafa þig í lífi sínu og þú svona þakklát og ánægð með þá. Við vottum þeim og öðrum ættingum og vinum dýpstu samúð.
Þórunn Ósk og Rósa