Einhvers staðar í kassa í bílskúrnum hjá mér eru líklega 26-27 ára gömul ljósrit af glósum úr stjórnmálafræði í rithönd Engilbjartar. Glósur úr mörgum kúrsum sem hjálpuðu mér að klára próf sem ég átti líklega ekki að klára, sökum slakrar mætingar eða leti og alls konar ómennsku en tókst samt að ná með hennar hjálp. Ég hef staðið í þakkarskuld við Engilbjörtu í öll þessi ár sem ég fæ aldrei að greiða úr þessu. Maður heldur alltaf að það sé nægur tími til alls. Stuttu eftir að við Liz fluttum heim frá Bandaríkjunum bauð Svandís Nína okkur Liz í mat og Óla og Engilbjörtu, kvöldverð sem var svo endurtekinn hjá Óla og Engilbjörtu sex árum síðar. Við Liz töluðum nýverið um að þessi litli hópur þyrfti að hittast aftur í mat og þá hjá okkur, en grínuðumst með að við þyrftum samt að bíða í 3-4 ár með boðið til að halda réttum rytma. Það er nú fyrir bí og ég sé svo eftir því að hafa ekki átt eina kvöldstund enn með henni og Óla. Það er áminning um að maður á ekki að bíða, ekki geyma góðar ákvarðanir, heldur nota tímann til að vera með góðu fólki. Frestur er ekki á neinu bestur.
Kæri Óli og fjölskylda, ég náði ekki að kveðja Engilbjörtu nema með þessum fátæklegu orðum.
Það er svo óraunverulegt og ótrúlegt að þessi lífsglaða, skemmtilega og fallega kona sé farin. En ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst henni, ekki bara fyrir glósurnar, sem voru jú mikilvægar, heldur fyrir stundirnar í HÍ og síðar. Engilbjört auðgaði líf allra sem hana þekktu. Megi Guð og góðar vættir geyma hana núna.
Friðjón R. Friðjónsson