Það er erfitt að sætta sig við þær fregnir sem bárust okkur 11. apríl síðastliðinn að elsku vinkona okkar væri fallin frá eftir skammvinn og erfið veikindi.
Leiðir okkar lágu fyrst saman þegar við hófum allar störf árið 1996 í Sádi-Arabíu fyrir flugfélagið Atlanta. Það var okkar gæfa að kynnast eins vandaðri manneskju og Engilbjört var í þessum framandi aðstæðum. Við ferðuðumst heimshorna á milli, kynntumst ólíkum menningarheimum og bundumst órjúfanlegum og sterkum vináttuböndum sem hafa haldist sterk allt til dagsins í dag. Frá því að við hættum allar störfum hjá Atlanta hefur vinátta okkar einkennst af því að við höfum alltaf gefið okkur tíma í að hittast án fyrirvara í gegnum árin, sem auðgaði hversdagsleikann og kenndi okkur hversu dýrmætt það er að rækta vinskapinn og deila sorgum sínum og sigrum með sínum nánustu. Það er því höggvið stórt skarð í okkar litla vinahóp og fjarstæðukennt að hún sitji ekki með okkur núna.
Engilbjört var einstaklega traust vinkona með fallegt hjartalag. Hún hafði sterkan persónuleika, var mikill húmoristi og með mjög svo smitandi og dillandi hlátur.
Okkur vinkonunum var oft mikið niðri fyrir en Engilbjört hafði sérstakt lag á því að sjá spaugilegar hliðar á málunum. Enduðum við oftar en ekki á að gleyma okkur fram á nótt í gríni og glensi þótt vinnudagur væri fram undan. Þegar Engilbjört hafði orðið þá var á hana hlustað og var hún ráðagóð vinkona.
Engilbjört kom til dyranna eins og hún var klædd og laus við alla tilgerð. Hún var prinsippkona, fylgin sér og tók sem dæmi ekki þátt í hégómlegum samfélagsmiðlalækum. Hún var mikil félagsvera og var oft drifkrafturinn í því þegar átti að gera sér glaða stund. Hún var mikill tónlistarunnandi, hlustaði þa gjarnan á rokk og hafði unun af því að dansa. Það voru ófáar ferðir farnar á Dillon til að dansa við undirspil DJ Andreu Jóns.
Engilbjört var mikil fjölskyldumanneskja og skein í gegn hversu mikla virðingu og ást hún bar til drengjanna sinna og eiginmanns.
Elsku Óli, Guðni og Kári, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð á þessum sorgartímum. Engilbjört var einstök manneskja og góð vinkona og hennar verður sárt saknað.
Takk fyrir samfylgdina í þessu lífi elsku vinkona, hittumst síðar.
Áslaug, Berglind og Ragnheiður