39
HRINGURINN LOKAST
HRINGURINN LOKAST
Við lokafrágang þessa handrits bauðst vaskur maður og velviljaður til að aðstoða mig við að koma á framfæri við Megas ósk minni um leyfi til að vitna í texta hans. Það valt mikið á þessari bón; frásögnin af sjálfu upphafi sambands okkar Engilbjartar með bréfinu góða og síðan örlagagletturnar undir lok þess.
Svarið reyndist mér dýrmætara en mig hefði getað órað fyrir. Og það auðveldar mér að sleppa nú takinu af lyklaborðinu, sem ég hef ríghaldið í án þess að gera mér glögga grein fyrir því.
Það er huggulegt að vita til þess að þú skulir geta gert þér einhvert gagn úr þessum textum sem vissulega eru sprottnir af gamansemi guðanna. En vegir kímnigáfu guðanna eru órannsakanlegir svo maður verður að næra sig með brotum einum og sjúga úr þeim merkinguna.
Ég þarf ekki að taka það fram en þér er auðvitað leyfilegt að nota þessar línur í prentuðu máli að vild og það gildir jafnframt um fleira sem þú mögulega rekst á og er merkingarbært fyrir þér.
Ég harma missi þinn en dáist að aðferð þinni við að vinna úr honum.
Gangi ykkur feðgum vel.
Vivi
Megas